Gums í orða og litmyndum

Njóttu gumsins

29.01.2008 08:54:36 / hilberg

Orðin fjögur

 

 

Komið sæl, nú skáldið

mun segja ykkur dáldið

um einmitt ykkur sjálf

þó ykkur finnist hálfvandræðalegt

á að hlýða

ég ætla ekki að hýða

einn

né neinn

og ekki verður rekinn fleinn

í hjarta nokkurs manns

nei, hér verður stiginn orðadans

Kannski með glans

kannski ekki

ég meina, ég þekki

ykkur ekki neitt

og veit þessvegna ekki hvað er heitt

hjá verkfræð-ingum

og tækniráðgjafareinstak-lingum.

En það var gerð könnun

hjá VGK-HÖNNUN

um gildi

og skyldi

það vera mildi?

Ég veit það ekki strax

en það var einhver stórlax

sem sagði að

svona lag-að

kæmi fólki af stað

svo einhverjir punktar voru hripaðir á blað

og ég var svo fenginn hing-að

til að

kynna það.

Jæja þá,

VGK

-HÖNNUN má

vera meira en smá

stolt af þessu fram-taki

Held það braki

ekki í neinum stoðum

í þessum nýju boðum:

Ég held við skoðum

niðurstöð-una

Ég meina, ég hlýt að muna

fjögur orð

en það var það sem kom á borð

eftir margra mánaða grúsk

Nei, þetta er ekkert fúsk

Það þurfti sko að grafa

eftir þessum safa.

Þetta er svo kristaltært

og gegnumglært

að hvert gildi er ekki bara sjálfbært

heldur skín það svo skært

að það verður hverju hjarta kært

eftir að allir hafi það lært

og þið þakkið mér síðar fyrir að hafa fært

ykkur gildin hér í dag

og kannski semjið þið til mín lag

Ég er alveg tilbúinn í þann slag

En það er alveg óþarfi að fara neitt að syngja

þetta er einu sinni mitt fag

Best að snúa stýrinu og stefninu

og koma sér að efninu

og hætta með útúrdúrssögur

og bjagaðar bögur

eins og kristallaður frostlögur

eða trostnað kögur

Því....

Gildin fjögur

eru fögur:

Það fyrsta er alls ó-vit-laust:

TRAUST

Annað hjálpar til bæði í sorg og gríni:

VÍÐSÝNI

Þriðja forðar oss frá hverskyns blekking:

ÞEKKING

Fjórða hjálpar til að halda geði:

GLEÐI

-----------------------------------------------------

Ókei.

Fyrsta gildið sem fram braust

í fæðingu sem hófst einhverntíman í haust

heitir TRAUST

Nú hlýðið prúð og góð

á þetta ljóð:

,,Þú sem framhjá borði þaust

og efann fremstan kosta kaust

hafðu bindið bara laust

og sýndu okkur hinum traust"

Þetta kvæði

sýnir bæði

þor og gæði

Því annað hvort þarf vitleysing

eða bara traustið slétt

að bera fyrir verkfræðing

ljóð sem ekki stuðlar rétt.

Ég meina, ef þú ætlar að vinna hér

verðurðu bara að treysta mér

og ekki síður sjálfum þér

traust öðrum er traust á sjálfum sér.

Hversvegna ættirðu að treysta?

Jú, hefur verið rifið af þér eista?

Kannski gert grín að þínum hvíta sokkaleista

en hefur einhver á vinnustaðnum reynt að kreista

úr þér lífsins neista?

Nei, ég þori að veðja

að raunverjulegt hreðjatak

hefur enginn á þér

Svo þér er jafnvel óhætt að ganga um ber

en muna bara að hafa hjálminn á sér

Allar pæjur

að hafa á sér öryggisgræjur

þá er ég ekki að tala um smokka

heldur öryggisvettlinga og sokka

ég vona að þið allar séuð búnar að fá

háhælaskó með stál-tá.

Jæja, nóg um traust að sinni

ég vona að flestir finni

það á eigin skinni

líkt og Tobbi og Tinni

að það þarf traust í sambúðinni

þegar byggja skal upp

og taka á á þátt alheimssköpuninni

----------------------------------------------

NÚ! það er hverju svíni

nauðsynlegt að hafa smá víð-sýni

sá sem sér vítt

getur samþykkt bæði svart og hvítt

alveg tilbúinn að gera eitthvað nýtt

bæði hart og blítt

slefað og snýtt

söndugt og grýtt

getur losað um og hnýtt

togað og ýtt

bæði sjaldan og títt

einnig ljótt og frítt

notað sparsl eða kítt

gelt, mjálmað og rýtt

haft það bæði gott og skítt

hvort sem er frost eða þítt

Enginn ætti að vera mæddur

að vera þessum kostum gæddur

að skoða í víð-sjá

er eins og að gá

hvort einhver á

ekki smá

kosti hér og þar

og ekki vera spar

á forvitni í lífsins gönguför

og horfa ekki alltaf í gegnum rör

hlusta jafnvel á geisladisk með hljómsveitinni BLUR

hækka um nokkur millibör

og prófa að ganga í jakkafötum úr hör

borða skyr út á blóð-mör

YESS SÖR

og svo er líka miklu betra að vinna með hinum

og þú gætir eignast helling af vinum

ef þú tileinkar þér í alvöru og gríni

smá víðsýni.

--------------------------------------------------------------

Þá tekur við gildið hið þriðja

og hefst þarmeð hin svokallaða þekkingarhryðja

svo vaki yfir okkur hin góða viskugyðja

sem gefur okkur gott að iðja

og vökvar á okkur heilann án miska

Hvað þýðir þekking, vill einhver giska?

Jú, þekking er að hluta það sama og viska

Þekking þýðir líka að kunna

til dæmis að reikna út borðarþol brunna

og formúlan yfir það hvað ein síldartunna

getur fætt marga munna

en þekking er líka nunna

með fingurna brunna

sem gætir sín á þyrnirunna

Þekking þýðir ekki magafylli

en getur leitt til yfirburðasnilli

Þekking þýðir ekki einhvert plott

nei, hún stendur fyrir hugvit, djarft og gott

og þekking birtist oss með margvíslegum hætti

til dæmis í sköpunarmætti

Líkt og sérhver lagni

kemur þekking alltaf að gagni

líka á jólum

því þá þarf að raða upp stólum

og með þekkingu skal tekið á unglingabólum

festa knipplinga á kjólum

reikna út sveiflulíkindi í rólum

hvernig beita skal allskyns tólum

eða herða skal á ólum

finna út snertiflöt á skósólum

eða halda í skefjum fólum

kreista réttu efnin úr njólum

búa til ilmvatn úr fjólum

reikna út hlýjindi á pólum

finna út álagið í skólum

og koma fyrir legum í hjólum

--------------------------------------------------------

Og þá erum við búin að bruna

í gegnum þekking-una

Komin að gildinu síðasta en ekki sísta

sem fjallar um það hvernig fuglar af gleði tísta

Gleðin er ekki það að vera alltaf í stuði

í lífsins puði

og þjóta

upp til handa og fóta

eins og Hemmi Gunn

alla leið út á landgrunn

með galopinn munn

og vera bara hress

ekkert stress

bless, bless, bless

Nei, gleði er að njóta

þess að hljóta

að mega móta

stefnu og starf til bóta

jafnvel þótt þú eigir gamlan og ryðgaðan Skoda

Því um leið og gleðin gengur í garð

erum við farin að sjá arð

og er það ekki takmark allra hér

að gera gagn bæði öðrum og sjálfum sér

og það veit sá sem mig hingað réði

að það er hægt að rækta gleði

maður byrjar á því að bjóða góðan dag

ræðir þá kannski þjóðarinnar hag

æfir sig í að segja takk og já

brosir jafnvel oggupoggu-smá

yfir því að tilveran er gul og rauð og blá

en ekki bara grá

og muna hvaðan þú hefur áhugann og kraftinn

og gefa jafnvel sjálfri þér á kjaftinn

ef þú ert orðinn fúl

vinnan verður nefnilega helvítis púl

ef það er ekki gaman

reynum því að muna öll saman

að gleðin er ekki bara spari

hún er eldsneyti í dagsins amstri

Þótt þú líkist hamstri

eða tilraunarottu

eða Hollendingi með hallærismottu

þá berðu ábyrgð á eigin gleði

sjáðu bara hvað skeði

með frænda minn sem ímyndaði sér

alltaf að forstjóri hans gengi um ber

Hann brosti alla daga út að eyrum

og brátt fór bros að taka sig upp hjá fleirum

Hjá Stínum og Jóum og Siggum og Geirum

Þetta er ekkert grín

Allir héldu að hann væri að brosa til sín

og glaðir unnu allir sinn vinnudag

og bættu um betur fyrirtækisins hag

Nú fer ég brátt að ljúka þessum brag.

En munið:

Manneskjan á sér efalaust

marga slæma kæki

víðsýni, gleði, þekking, traust

eru hjálpartæki

Já, hjálpartæki í lífi og störfum

og í ástum - notist algjörlega eftir þörfum

Þá fer þessu að ljúka

Bless ég þarf að kúka

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 09:39:59 / hilberg

Spenna, drama og spuni í Brandaraborg.

Í ljósi atburða gærdagsins og síðustu mánuða í borgarmálum í Reykjavík, þá getur maður ekki komist hjá því að spurja sjálfan sig.

"Er ég örugglega vakandi ? Er þetta raunveruleikinn ?.. er það ?

.. og auðvitað svara maður því neitandi, það getur ekki verið. Svona snilldarlegar fléttur og hádramatískt leikrit eins og við höfum orðið vitni af, geta ekki nema snillingar skrifað og því fullyrði ég það að ég lifi í draumi. Handritshöfundar á Íslandi hafa greinilega ekki farið í verkfall eins og þeir í Hollywood. Og ég fullyrði líka hér með að þeir eru búnir að gera lítið úr þeim bestu í Draumalandinu því þeir gætu aldrei skrifað þetta betur. 

Næsta spurning er auðvitað.. hvað gerist næst hér í SpinCity eða í Brandaraborg ?

.. maður bíður spenntur og vill ekki vakna fyrr en maður hefur séð meira af þessari hádramatísku og þverpólitísku spennuséríu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 16:44:56 / hilberg

Björn Ingi væluskjóða eða snillingur ?

Það vinsælasta hjá stjórnmálamönnum í dag er að væla. Hillarý bjargaði sér algjörlega um daginn með því að “ekka” í viðtali og sýna þar með sína mannlegu hlið. Okkar Hillarý er  Björn Ingi hjá Framsókn.. það er ekki spurning.  

.

Annað hvort er hann algör væluskjóða eða hann er á undan sínum samtíma og frammúrskarandi stjórnmálamaður með því að nota þennan “ekka”. Hann er alla vega óhræddur að sína á sér mjúku hliðina og jafnvel fella tár til að fá menn á sitt band.

.

Það var leikur hjá honum að svíkja Sjálfstæðisflokkinn í Borgastjórn og fara svo "ekka" fyrir framan flokkinn sinn til að biðja þá um stuðning. Hann beinlínis bað þá um að hugga sig fyrir slæma framkomu Sjálfstæðiflokksins. Þetta virkaði vel hjá honum því fyrir vikið uppskar hann samúð og samstöðu hjá sínum flokksmönnum með áframhaldið.  

.

Nú er hann "ekkandi" í fjölmiðlum og nú biður hann flokksmenn sína um styrk og samstöðu við að hálshöggva flokksbróður sinn Guðjón Ólaf. Guðjón gagnrýnir Björn Inga fyrir spillingu, að láta flokkinn borga jakkafötin sín í síðustu kosningum. Í þetta sinn virkar "ekkið" svo vel hjá Björn Inga að sjálfur formaðurinn Guðni er nú farinn að hugga hann opinberlega og þerrar tárin hans í fjölmiðlum.

.

Það virðist vera þannig í stjórnmálum að því meira þú svíkur og stelur, því meiri spilling og hroki þú sínir fólki.. því flottari ertu. Þannig menn vilja þeir í stjórnunnarstöður.

.

Ég er nú svo einfaldur að mér finnst einfaldlega að stjórnmálamenn eigi að hafa efni á því að klæða sig sjálfir. Þeir hafa alla vega fengið mun meiri kauphækkanir á síðustu árum en almenningur, svo það er rugl að þeir borgi ekki sínar lufsur sjálfir. Þeir fá margs konar hlunnindi sem snúa að bílastyrkjum, ferðastyrkju, dagpeningum og hvað veit ég.

.

Svo þegar Björn Ingi fer líka fram á að fá jakkaföt ofan á allt .. þá finnst mér það líka vera spurningarmerki og hann kominn á grátt svæði og spurning um valdníðslu og spillingu. En hvernig bregst hann við þeirri gagnrýni ? Hann vælir um biður um samúð fyrir óréttlætinu í flokkbróður sínum.  

.

Hvort er hann Björn Ingi væluskjóða eða lítill strákur sem fer að skæla þegar hann fær ekki allt sem hann vill eða er hann kannski á hinn bogin á undan sínum samstíma í stjórnmálum að spila inná samúðina hjá fólki í fjölmiðlum?


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 11:32:24 / hilberg

Nýtt ár byrjar eins og það gamla endar.. bara brillíant.

Nýja árið varla byrjað þegar allt er rúllað yfir um hérna í vinnunni.

Ég er þegar farinn að taka 4 verkjastillandi og 4 bólgueyðandi á dag til að halda mér gangandi eða réttara sagt.. sitjandi við skrifborðið og tölvuna endalaust.

Lítrafjöldinn af Pepsi Max og kaffibollunum fer sífellt hækkandi og sé ég fram á að persónleg met í lítrafjölda á sólahring falla á allra næstu vikum.

Svefninn fer hraðlega mínnkandi og verður keyrður niður í núll fyrir páska.

Tími fyrir þrif er löngu farinn út úr sólahringnum (ekki tími fyrir svoleiðis) en lyktin er ekki ennþá óbærileg en hárvöxturinn fer fljótt í fléttur út um allan líkama. 

Mataræðið er tekið eftir hentugleika annað hvort við tölvuna eða á milli funda í bílunum.. sem sagt bara skindibiti og annað ógeð sem maður dettur niður á.

Bara spurning hvað maður endist lengi í þessu .. eigum við að segja ca. 5 ár í viðbót ?

Og svo segjum við öll í einum kór: "Það best að búa á Íslandi."


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 12:29:49 / hilberg

Gleðilegt nýtt ár.

Ég óska öllum þeim sem koma hérna við gleðilegt nýtt ár og þakka þeim fyrir það liðna.

Ég hef átt ágætlega viðburðarríkt ár sem einkennist af hamingju og velgengni í leik og í starfi. Ég sé fram á að næsta ár verði svipað, fleiri breytingar og vonandi enn meiri velgengni í leik og starfi.

Ég óska okkur öllum velgengni í því við tökum okkur fyrir hendur og megi nýja árið vera okkur öllum mikil blessun á öllum sviðum lífsins.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 12:26:07 / hilberg

Margrét Lára Íþróttamaður ársins., þetta er vægast sagt umdeilt val.

Ég hef ávallt haft mikið álit á Margréti Láru sem knattspyrnukonu. Hún er feikilega efnileg og leggur mikið á sig til að ná árangri ENN hún er ennþá áhugamaður í sínu sporti. Hún hefur í mörg ár verið afburðamanneskja í kvennaknattspyrnunni hér heima en hún hefur ekki ennþá sannað sig á alþjóða vettvangi. Það hafa margir velt því fyrir sér, því reynir hún ekki fyrir sér á erlendri grundu ? Hvers vegna setur hún sér ekki hærri markmið þar sem hún hefur unnið allt hérna heima oftar en einu sinni ? Hvað stoppar hana af til að reyna fyrir sér á alþjóðar vettvangi þar sem fleiri keppinautar hennar eru í sama gæðaflokki og hún?

Að þessu sögðu, þá finnst mér fáranlegt að bera afrek hennar við afrek aðra íþróttamenn sem eru dags daglega að keppa á alþjóðar vettvangi og eru atvinnumenn í sínu fagi. Mér finnst það hreinlega móðgun við þá mörgu afreksmenn sem við eigum og eru t.d. afreksmenn á alþjóðavettvangi. Þeir eru meðal annars valdir í heimslið í sinni íþrótt samban ber Ólaf Stefánsson og Guðjón Val og NB Guðjón Valur var markahæðstur á HM í handknattleik.

Einnig vil ég meina að Birgir Leifur Hafþórsson atvinnugolfari hafi unnið þrekvirki að komast aftur inná Evrópumótaröðina í golfi og hann er vel að þessum titli. Hann er  fyrsti íslendingurinn sem vinnur þetta afrek. Rétt eins og Eiður Smári var fyrstur til að leika með einu stærsta fótboltaliði í heimi Barcelona og er núna búinn að skáka mörgum af bestu knattspyrnumönnum í heimi með því að ná fasta sæti í liðinu og halda Ronaldihnio á bekknum.

Hins vegar vil ég meina að Ragna Ingólfsdóttir hnitdrottning hafi átt skilið 3. sætið í kjörinu þar sem hún vann marga af bestu badmintondrottningum í sinni íþrótt á árinu.

En ég segi bara rétt eins og einn óþolandi íþróttafréttamaður segir alltaf þegar hann hefur bullað..

.. "þetta er bara mín skoðun"


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 14:06:56 / hilberg

Börnin mín fá Range Rover í jólagjöf.

 

Er ekki málið að vera eins og Jón Ásgeir og gefa Range Rover í jólgjöf ?

Neii.. ég held að ég geri bara gott betur og gefi tvo, þar sem ég á tvíbura :lol: 


Börn fá Range Rover í jólagjöf

Eftir Atla Fannar Bjarkason - atli@24stundir.is

Fjarstýrður Range Rover fyrir þau allra flottustu. Spilar tónlist og er með alls konar flottum ljósum. Alvörukaggi!" Svona er fjarstýrðum Range Rover-jeppa lýst í Hagkaupum í Smáralind.

Samkvæmt upplýsingum frá leikfangadeild Hagkaupa í Smáralind er mikil spenna fyrir fjarstýrðum lúxusbílum, þrátt fyrir að þeir séu ekki mjög hentugir í torfærur, en börn eru jafnan spenntari fyrir hólum og hæðum heldur en hefðbundnum götuakstri.

Lexus- og Ford Mustang-bílar eru einnig fáanlegir í fjarstýrðum útgáfum, en starfsmaður í Hagkaupa sagði að verslunin hefði nýlega tekið inn þessar tegundir af bílum. Sannkallað lúxusbílaæði hefur gripið þjóðina og þar er greinilega ekki spurt um aldur.

Skemmst er að minnast þess þegar Blaðið (nú 24 stundir) sagði frá því að 2007 yrði metár í lúxusbílasölu. Það sem af er ári hafa 127 nýir Range Rover-jeppar selst samkvæmt upplýsingum af vef Umferðarstofu.

Verðið á þeim er frá tæpum 8 milljónum upp í rúmar 17 milljónir. Verðkröfur barnanna eru ögn hógværari, en fjarstýrður Range Rover kostar 6.990 krónur í Hagkaupum. Ef barnið hyggst taka bílalán til 84 mánaða hjá TM fyrir bílnum þyrfti það að punga út rúmum 400 krónum á mánuði, miðað við 20% innborgun. Fjarstýrði bíllinn myndi á endanum kosta rúmar 33.000 krónur.

 

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 09:29:07 / hilberg

REI, REI ekki um jólin.

Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur gerði frábært grín að REI-málinu á árshátíð sinni um síðustu helgi.

 http://www.youtube.com/watch?v=X0zD59sre2A&eurl

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 16:46:02 / hilberg

Mislukkað skítakomment um Gillzenegger.

Það er ekki annað en hægt að kommentera á svona rugl..

 .. því fara menn ekki bara á síðuna hans Gillz og öskra þar frekar en þetta ??

http://www.gillz.is/

Ok hann Gills er bara eins og hann er og held ég að flestir séu búnir að ná hans unglingahúmor og sumir hafa bara gaman að honum.

Lýsir svona skítakomment ekki bara viðkomandi persónu betur en því sem hann er að reyna að segja ?

 


GilzNEGGER?
Ok ég get bara ekki orðabundist lengur!

Hver er þessi fjandans gaur sem heiladauðir fjölmiðlar íslands virðast vera svona staðráðnir í að troða inn í líf okkar alla daga?

Séð og heyrt, Hér og Nú, DV, Sirkus og allt hitt kjaftæðið, hvað er fjandans málið?... Þurfið þið á svona grát-hlægilegum fjölmiðlahórum eins þessum að halda til að halda ykkur uppi? Eru Íslendingar orðnir svona fokking heilalausir, grunnhyggnir og yfirborðskenndir að þeir þurfi á svona fjölmiðlahórum að halda til að taka til fyrirmyndar?

Hvað hefur þessi einstaklingur gert? Hverju hefur hann áorkað svona merkilegu í lífinu að ég þurfi að þjást við það að FORLJÓTU smettinu á honum sé troðið framan í mig allan daginn, ásamt sorglegu frösunum hans?

[Ég vill taka það framm að ég les ekki einu sinni þessi tímarit en sé hann á forsíðu þeirra alla daga þegar ég fer út í búð að kaupa mér banana ...já ég sagði banana]

Og ekki nóg með það þá hefur hann skrifað bók, ég endurtek; SKRIFAÐ BÓK??? Og það sem verra er að allir 6-16 ára guttar eiga eftir að hlaupa um allan bæ og kaupa hana til mikils fagnaðar fyrir fjölmiðla og útgefnendur (sem eru aðeins að nota þessa greyið hóru til að græða peninga á hugsunarlausum fjöldanum) og um hvað er þessi bók eiginlega?.. það að vera fallegur? Heil bók um ÞAÐ AÐ VERA FALLEGUR????? KOMMON!! Þetta er eins og í bíómyndinni Zoolander!

Er greind samfélags okkar að fara niður í klósettið með hverjum árgangnum og fjölmiðlarhelvítin að hjálpa til? Eða vita kannski allir hversu mikið sorglegt djók þessi náungi er nema hann sjálfur?

Og fyrir hans CULT OF MINDLESS FOLLOWERS sem eiga eftir að svara þessum kork og kalla mig rjóma, frómas og aðrar matvörur sem þeir finna í eldhúsinu hjá mömmu sinni og segja "Þú ert bara öfundsjúkur" og "djöfull ertu bitur" ..þá vil ég segja GROW THE FUCK UP!!

p.s. "Fazmo Klíkan"??.. pælið aðeins í því helvíti! vá vááááá, þeir kunna meira að segja að tala og allt og eiga klíku, klíku sem kann að tala og skírði sig eftir einhverjum efnafræðikennara í gaggó '94 váááá .. þurfum við hin að vita þetta tilgangslausa kjaftæði? geta einhverjar stráka "klíkur" ekki bara verið í sínum orgíum heima hjá sér og hætt að hórast í dagblöðunum til að fá athyglina sem þeir fengu aldrei í æsku?

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 14:30:47 / hilberg

Jólastress og trúmál.

Þá er það síðasta vikan fyrir jól.. margt sem þarf að gera og bráðum verða allir drullu stressaðir. Ég ætla að plana í kvöld hvernig ég geri það sem ég á allt eftir ógert til að ná þessu öllu fyrir næstu helgi. Skrautið, pakkana, matinn, kortin, fötin, versla inn og gera hreint.. þetta hlítur að reddast einhvern veginn.

Helgin var ágæt og sérstaklega laugardagurinn. Stórfjölskyldan kom saman til að minnast afa og ömmu. Afi hefði verið 100 ára þann 15.des ef hann hefði lifað blessaður og minntist fjölskyldan gamla mannsins. Sama dag hélt ég uppá afmæli Nökkva elsta sonar míns en hann var 6 ára þann 13. og fórum við í smá flipp ég, hann og Magnús frændi hans. Fyrst fékk hann stóran pakka sem var pappakassahús og inní því húsi voru fullt af pökkum. Hann fékk útrás að taka utan af öllum pökkunum. Eftir það fórum við í Keiluhöllina í spilasalinn og fengu þeir frændurnir og vinirnir aðra útrás í spilskössunum. Þegar því var lokið fengu þeir ís og smá nammi og fórum við svo í minningarathöfnina hans afa þar sem þeir gátu leikið sér í golfi og pool. Svo þessi dagur var ferlega skemmtilegur fyrir þá frændur.. og fyrir flesta að ég held.

Ég nenni nú varla að tala um gærdaginn, sunnudaginn.. honum eyddi ég á Players að horfa á fótbolta sem mér fannst ömulegur. Ég þoli ekki Man. Unt. og Arsenal.

Er ég kom í vinnuna í morgun fékk ég leiðinlega fréttir en einn vinnufélagi minn hefur barist við krabbamein í rúmt ár og lést hann í nótt. Þó að maður hafi verið búinn að búa sig undir þessar fréttir lengi og þá hann sjálfur líka.. þá koma svona fréttir alltaf aftan að manni. Óskar Þór var eðal náungi, hress, kátur og feiknalega duglegur, fæddur 1960 og lætur hann eftir sig konu og tvibba. Hann var nefnilega tvibbapabbi eins og ég. Það áttum við líka sameiginlegt og gátum við haft gaman að því þegar við vorum að segja hvor öðrum þær sögur.

Mér finnst vera leiðinlegt hvernig við erum farin að tala um trúmál hér á Íslandi. Við erum ekki ennþá farin að eiga við nein alvöru vandamál hvað varðar múslima eða heittrúaða innflytjendur sem gera alvöru kröfur um moskvur og fá að ganga með slæður í skólum eða eitthvað í þessum stíl. En samt erum við sjálf farin að reyna að búa til svo flækjur. Erum við að reyna að stæla vandræðin í Evrópu ? Hvers vegna erum við að flækja þessu mál svona allt í einu núna ? 

Ég er á þeirri skoðun að við eigum alls ekki að gefa eftir neitt hvað varða kristnifræði og kennslu á kristilegu siðgæði í skólum. Mér finnst það bara vera nógu góð rök að við erum að tala um 90% meirihluta og 1000 ára hefð og allt hefur verið blessunarlega gott hingað til. Mér finnst við ekki eiga að hlusta á þessa minnihlutahópa sem halda að þeir séu eitthvað spes. Þegar þeir reyna að kalla það mannréttindi að fá að breyta þjóðfélagi eftir sínu höfði þá finnst mér þeir vera að fara út á hálan ís. Mér finnst þeir vera að nota sér þær hörmungar sem eru að gerast á mörgum stöðum í Evrópu að kristin samfélög er að lúffa fyrir múslimum.. eingöngu út af því að mínu mati..  vegna þess að múslimir eru að standa með sinni trú en ekki við. Því er kristið fólk ekki að standa með sinni trú ? Því erum við alltaf að sýna "skilning?" Það stendur í Biblíunni að við eigum að berjast fyrir því sem við trúum. Við eigum að berjast fyrir trúnni okkar og þegar byrjað er að ráðast svona á hana.. þá eigum við að standa upp og segja stopp. Ég segi gefum ekki eftir og ef trúleysingjar vilja fræða börnin sín um annað en kristni, þá gera þau það sjálf. Börnin eiga rétt á því að vita hvaðan þau koma og hverjir voru forfeður þeirra. Þó að foreldrar þeirra hafi kosið að hafna kristinni trú, eða ala þau upp í öðru siðgæði, þá er það réttur barnanna að vita það hver rótin þeirra sé og í hvernig þjóðfélagi þau búa. Það er ekki hægt að 90 % af þjóðinni eigi bara að sýna þessum litla minnihluta hópi fullan skilning á þeirra sérstöðu. Mér finnst það alla vega út hött.

Amen að sinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 14:16:59 / hilberg

Ástin og börnin.

"Þegar maður verður skotin í ástfanginn, þá er það rosalega sárt og maður getur meitt sig alveg fullt."
-Magnús 7. ára. 
 

 

"Ég veit ekki alveg hvers vegna það eru svona margir ástfangnir,
en ég held það sé vegna þess að konur eru með ilmvatn og karlar rakspíra
og það er þá líklega vegna þess að þau ilma svo vel. Þess vegna seljast ilmvötn svo mikið.
Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda og oftast fyrir pabba."
-Siggi 8. ára

"Ég hef heyrt að ástin og að verða ástfanginn sé það mikilvægasta í heiminum,  
en það er líka mikilvægt að Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.
 


"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að finna mér konu."
-Tómas 5 ára. 

  "Mér finnst voða gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan Birta
og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.

 "Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort öð
ru , en samt fara þau út aftur...og verða kannski hjón?"
-Finnur 10. ára. 
 

 

"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára. 

  "mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
blaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára. 

  "Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.
 

"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.
 

"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.
 

"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar  7. ára. 

  "Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára 

  "Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára. 
 

 

"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir
að fela þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar mig og verða skotnar í mér."  

-Davíð 8. ára.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 11:23:59 / hilberg

Hvenær náðu Jack Black Joe heimsfrægð ? Missti ég af áratug eða ?

 .. en það er það sem manni dettur i huga þegar maður sér svona þessa auglýsingu hér að neðan. Hvaða rugl er þetta með að auglýsa tónleika eins og þessa rétt fyrir jólatörnina þegar allt er fljótandi í flottum jólatónleikum og alls konar viðburðum ? Þetta er blásið upp og miðaverðið er líka eins og hér sé um heimsviðburður að ræða ?

Páll ætti nú að eiga fyrir steikinni en kannski hinir í bandinu séu að ná sé í aur fyrir jólainnkaupin.. allir komnir með yfirdráttinn í botn. 


Miðasala á tónleika rokksveitarinnar Jet Black Joe í Laugardalshöll hinn 16. maí á næsta ári hefst í dag klukkan 10 á midi.is, Skífunni og BT úti á landi.

Á tónleikunum spilar Jet Black Joe með félögum úr Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar, auk fjölda söngvara og hljóðfæraleikara.
Á meðal laga sem flutt verða eru Rain, Higher and Higher, I Know og Oh Happy Day. Miðaverð er 6.900 og 5.900 krónur


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 20:04:08 / hilberg

Geir Ólafs var tekinn aftur...

Það er bara virðist alltaf hægt að "taka" Geir Ólafsson. 

 


Sáttafundur Erps og Geirs í Íslandi í dag í kvöld

Erpur hefur lent í dýpri pytt en þessum. Hér er hann í Kambódíu.

Erpur Eyvindarson og Geir Ólafs ætla að slíðra sverðin í kvöld og ræða málin í Íslandi í dag.

Geir og útgefandi hans, Óttar Felix Hauksson kröfðust lögbanns á sjónvarpsviðtal sem Erpur tók við Geir. Viðtalið birtist á nýrri sjónvarpsstöð, Þristinum, þar sem Erpur er í hlutverki sjónvarpsstjóra og dagskrárgerðarmanns.

Geir er að senda frá sér plötu um þessar mundir, en í viðtalinu hefur Erpur meiri áhuga á að ræða það sem Geir kallar bernskubrek. Þar á meðal þriggja ára gamalt atriði úr sjónvarpsþættinum Kallarnir sem var sýndur á Sirkus og Egill ,,Gilzenegger" Einarsson stjórnaði. Þar bregður Geir á leik og kennir mönnum hvernig umgangast eigi konur, vopnaður gúmmídúkku sem kennslugagni.

Geir sagði í Fréttablaðinu í gær að ekki væri væri verið að óska banns á viðtalinu sem slíku. Honum finnst þó að með því að skeyta þessum upptökum við viðtalið sé verið að gera lítið úr sér. Erpur er ekki sammála því, en honum finnst óskiljanlegt hvers vegna Geir vilji fá viðtalið bannað. Hann segir það hefðbundin vinnubrögð í sjónvarpi að klippa inn efni sem ber á góma. ,,Ef menn eru að juða á gúmmítuðru og það er rætt sérstaklega ber að sýna umrætt atriði" sagði Erpur við blaðamann Fréttablaðsins.

 


 Það er ekki verið að setja bann á viðtalið sem slíkt. Ég ákvað að fara í viðtalið og allt í fínu með það en þeir voru að skrumskæla þetta með því að setja inn gamlar óþægilegar upptökur inn í viðtalið, upptökur sem ég er alls ekki stoltur af. Þar sem beinlínis er verið að gera lítið úr mér. Já, mér finnst það," segir Geir Ólafsson tónlistarmaður.

Lögbanns hefur verið krafist að ósk Geirs og útgefanda hans, Óttars Felix Haukssonar, á sjónvarpsviðtal sem Erpur Eyvindarson tók við Geir. Viðtalið birtist á nýrri sjónvarpsstöð, Þristinum, þar sem Erpur er í hlutverki sjónvarpsstjóra og dagskrárgerðarmanns. Sjónvarpsstöðin er send út á rás 12 á Digital Ísland.

Hafa menn orðið við þessari kröfu meðan lagastaða er skoðuð. Geir er að senda frá sér nýja plötu um þessar mundir sem ber heitið „Þetta er lífið" en í viðtalinu beinir Erpur einkum sjónum að því sem Geir kallar bernskubrek - vill ræða þriggja ára gamalt atriði úr sjónvarpsþættinum Kallarnir sem voru á Sirkus og Egill „Gilzenegger" Einarsson stjórnaði. Þar bregður Geir á leik og þykist kenna mönnum hvernig umgangast eigi konur og er með gúmmídúkku sem kennslugagn.

„Það hljóta allir að sjá að þetta er ekki við hæfi í dag. Þetta eru bernskubrek og mér finnst erfitt og óþægilegt að sjá þetta sett í slíkt samhengi - án alls samráðs við mig og útgefanda minn Óttar," segir Geir.
Erpur segir óskiljanlegt hvers vegna Geir vill fá viðtalið bannað. Segir það frábært og skemmtilegt hvernig Geir blæs á kjaftasögurnar. „Hann gerir hreint fyrir sínum dyrum og stendur uppi eftir sem heildstæðari og betri maður. Gerir allt rétt."

Erpur bætir því við að þetta séu hefðbundin vinnubrögð í sjónvarpi að klippa inn efni sem ber á góma - sé slíku efni til að dreifa. „Ef menn eru að juða á gúmmítuðru og það rætt sérstaklega ber að sýna umrætt atriði."

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28
Maður með mönnum!!?